Monday, October 02, 2006

Færsla #91

Ragga:

Sigga var í handæði sínu að fikta óboðin í pennaveski mínu. Ekki tókst litlu konu betur til en svo að hún skemmdi græna pennann minn með miklum látum. Á dauða mínum átti ég frekar von en að SS liti á mig með ásökunarblik í augum og segði: "Hvað er þessi penni að gera hér? Hann er slysagildra!"

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Jiii Sigga, varstu að skemmileggja? Suss svona gerir maður ekki!

9:21 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hún Ragnhildur fer nú heldur fjálglega með staðreyndir þykir mér.

10:54 PM  
Blogger Bibba Rokk said...

Hey, Ragga bloggaði, á að mæta á föstudaginn?

8:34 PM  
Blogger Alma said...

Þú verður að átta þig á því Ragnhildur að Sigríður er af ættum starfsmanna í forvörnum. Hún vill að slysum sem þessu sé forðað.

9:35 PM  

Post a Comment

<< Home