Tuesday, March 14, 2006

Færsla #68

Sigga:

Tveir tímar í brottför til Keflavíkur, hvorfra jeg flyver til Boston kl. 17. Mér þykir rétt að birta stöðuna á vísindamannalistanum á þessari stundu þar sem aldeilis hefur orðið breyting á síðan síðast.

Mynd 1: Sýnir 1.-8. sæti vísindamannalista Vélarinnar.

Líkt og sjá má hefur undirrituð flogið upp listann og er hástökkvari vikunnar, komin í 6. sæti. Hinar pjásurnar tvær eru heldur neðar á listanum, Þóra Þorgils í 19. sæti og Elín Birna í því 50. Þá er að finna í átta efstu sætunum ansi efnilega djammara og virkilega gott fólk. Ólafur og Lárus koma virkilega sterkir inn í félagslífið á misserinu og eiga hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu.

Því er ekki neita að sjötta sæti listans hefur haft töluverð áhrif á mig. Ég verð vör við aukna virðingu og viðurkenningu samnemenda og því verður líklega erfitt að koma heim frá Ameríku þar sem ég missi af ferðinni til Alcoa og því sýnt að ég muni hríðfalla niður listann.

En ég lít á björtu hliðarnar og hlakka til að sjá þessa gaura í vikunni (vonandi):

Mynd 2: Var óvart birt en hún sýnir Tobias Fünke og Micheal Bluth.

Nei, úps... meina þessa gaura:

Mynd 3: Sýnir The Blue Man Group

4 Comments:

Blogger Alma said...

Muntu ekki vera merkileg í staðinn fyrir að hafa verið í henni Amríku?

1:04 PM  
Anonymous Anonymous said...

Va! Sjøtta sætid er serdeilis prydilegur arangur! Til lukku Lotta litla!
Minar bestu kvedjur til raudhærda straksins... og blau mannanna ad sjalfsøgdu.

3:48 PM  
Anonymous Anonymous said...

Skemmtu þér vel í Booooston! :) Hilsen!

7:02 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hva fær maður ekki report frá Boston!

2:40 PM  

Post a Comment

<< Home